Alskonar og margskonar framkvæmdir segir Jóhanna

Ríkissstjórnin ætlar að keyra með jólastemmningu í svona 10 daga. Loforð um að nóg verði af vinnu og mat eins og allir geta í sig látið. Fram að Icesave kosningu 9 apríl á að keyra með þá ímynd að góðæri sé í nánd til að fyrirbyggja að upplausn í kjarasamningum fjölgi enn frekar nei atkvæðunum.

Jóhanna segir að ekki sé hægt að fara út að nefna einstakar framkvæmdir - ekki hægt að spá hvað mörg störf skapast. Hún segir eins og í jólakvæðinu: "hvað það verður veit nú enginn vandi er um slíkt að spá." Í raunveruleikanum er yfirleitt notast við útreikninga.
„Þetta eru mjög mörg og viðamikil verkefni sem við erum að tala um, opinberar framkvæmdir margs konar. Við getum eiginlega ekki farið út í einstök atriði í þessu,“ segir Jóhanna.

Hér vantar ekkert upp á eftiröpun ríkistjórnarinnar á frægasta kosningaloforði Gnarr borgarstjóra.


mbl.is Auka framkvæmdir um 50%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Ég held því miður, að maður verði að taka atvinnuaukningarloforðum frú Jóhönnu með fyrirvara ? Þessi tímasetning yfirlýsingar hennar "korteri" fyrir kjördag er einum of Jóhönnu-leg fyrir minn skilning. Skelfing er mat þeirra skötuhjúa, Jóhönnu og Steingríms J., á þegnum þessa lands, ef þau halda, að fólk trúi þessu eins og nýju neti ?

Kv., KPG.



Kristján P. Gudmundsson, 31.3.2011 kl. 19:39

2 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Leiðr.: mat þeirra skötuhjúa les: mat þeirra skötuhjúa, Jóhönnu og Steingríms J., lágt á þegnum.....

Kristján P. Gudmundsson, 31.3.2011 kl. 19:43

3 Smámynd: Anna Björg Hjartardóttir

Jóhanna er því miður ekki kona orða sinna.

Anna Björg Hjartardóttir, 31.3.2011 kl. 20:30

4 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Satt segið þið...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 31.3.2011 kl. 21:19

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Einmitt,það er sjálfvirk stöð í heilanum,sem minnir á kækinn hennar,æ-i hún var nú alin þarna upp.

Helga Kristjánsdóttir, 31.3.2011 kl. 21:37

6 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Bara það að landa og fullvinna fisk hérna á Íslandi gæti skilað yfir 1000 störfum...  En það má víst ekki..

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 31.3.2011 kl. 23:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband